Vetrarstarfið af stað hjá Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps

Nú þegar haustverkunum fer að ljúka í sveitum landsins hefst ný vertíð hjá mörgum bændum og er engin undantekning á því hjá söngmönnum í Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps en þar fer vetrarstarfið senn að hefjast. Fyrsta æfing kórsins verður í Húnaveri fimmtudaginn 20. október nk. 

 

Á heimasíðu kórsins segir að framundan séu spennandi tímar með tónleikahaldi og fl. en í vor verður farið á kóramót í Noregi og því til margs að hlakka.  Nýir félagar eru boðnir velkomnir því alltaf er pláss fyrir áhugamenn um skemmtilegan karlakórssöng.

Fleiri fréttir