Vetrarstarfið hafið á ný í bjartari og rýmri aðstöðu
Félagsstarf eldri borgara á Skagaströnd er hafið eftir sumarfrí. Samkvæmt heimasíðu Svf. Skagastrandar hófst vetrarstarfið sl. fimmtudag í nýju rými sem gert hefur verið upp í félagsheimilinu Fellsborg.
Á heimasíðunni segir að starfið hafi verið dálítið á hrakhólum síðastliðinn vetur þar sem öll neðri hæð félagsheimilisins var tekin til endurbóta en þar hefur starfsemin verið undanfarin ár.
Vetrarstarf eldriborgara á Skagaströnd hafið á ný í bjartari og rýmri aðstöðu. Mynd: skagastrond.is
Endurbæturnar voru fólgnar í að herbergi í suðurhlutanum voru öll sameinuð í einn sal með kaffiaðstöðu og geymslum og tvö rými í norðurhlutanum voru sameinuð fyrir bókasafn Skagastrandar.
„Nú er félagsstarfið sem sagt flutt inn í nýuppgert rými sem er bæði bjartara og rýmra en sú aðstaða sem áður hýsti starfið,“ segir á heimasíðunni.
Jafnframt félagsstarfinu er gert ráð fyrir að hægt sé að nýta aðstöðuna til fundahalda og reiknað með að Kvenfélag og Lionsklúbbur sem gáfu eftir herbergi sín muni nota salinn fyrir fundi og aðra starfsemi sína.