Víða hálka á vegum
Hálka er nokkuð víða á Norðurlandi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, en flughálka milli Hofsóss og Ketiláss. Í dag verður sunnan gola, skýjað og dálítil slydda eða rigning í kvöld. Hiti 0 til 5 stig.
Veðurspá á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Hæg sunnanátt, en vaxandi suðaustanátt síðdegis. Fer að rigna, fyrst S-lands, en þurrt NA-til á landinu. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst.
Á föstudag:
Austan og suðaustan 13-23 m/s, hvassast SV-til. Úrkomulítið á N- og V-landi, annars rigning. Hiti 3 til 8 stig.
Á laugardag og sunnudag:
Ákveðin austanátt. Rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið N- og V-lands. Heldur kólnandi.
Á mánudag og þriðjudag:
Austanátt, skýjað með köflum og dálítil él A-til. Frost víða um land.