Víða hált í þíðunni

Á Norðurlandi vestra er víða hálka eða hálkublettir í þíðunni en flughált er frá Hofsós í Fljót. Samkvæmt Veðurstofu Íslands er suðvestan 5-13 með stöku skúrir eða slydduél, en hægari eftir hádegi. Austan 5-10 og rigning í kvöld, en hægari sunnanátt og þurrt í nótt.

Í fyrramálið verður austlæg átt, 3-10 og rigning með köflum. Hiti yfirleitt 0 til 6 stig, en 2 til 7 stig á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:
Suðaustan 10-18 með rigningu S-lands, en sunnan 5-10 m/s, skýjað og úrkomulítið á NA-landi. Hlýnandi, hiti 5 til 10 stig síðdegis.

Á laugardag:
Suðvestanátt, 8-15 m/s og skúrir eða slydduél en hægari og léttir til á NA-verðu landinu. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast á Austfjörðum.

Á sunnudag:
Austlæg og síðar breytileg átt. Vætusamt mest síðdegis og líkur á slyddu, einkum NV-til. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig.

Á mánudag:
Vaxandi austanátt. Allhvöss eða hvöss og rigning S- og V-til um kvöldið, en annars þurrt. Hlýnandi veður.

Á þriðjudag:
Breytileg og síðar vestlæg átt. Víða fremur úrkomusamt, en styttir upp A-til undir kvöld. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost til landsins.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir svala sunnanátt með slyddu um landið S- og V-vert, en annars úrkomulítið.

Fleiri fréttir