Víða horfur á heyskorti

Nú eru bændur á fullu í heyskap sem hófst nokkru seinna en venjulega þar sem miklir kuldar réðu ríkjum í byrjun sumars. Ekki bætti úr skák langt þurrkatímabil sem kom í kjölfarið og eiga bændur því víða von á lakri uppskeru.

„Sprettan tók kipp í vætunni um daginn en það verður víðast hvar því miður ekki nóg .“ segir Eiríkur Loftsson, ráðunautur hjá Leiðbeiningamiðstöðinni í Skagafirði.

Kalt og þurrt tíðarfar

Vorið lofaði góðu með hlýjindum í fyrri hluta maímánaðar, þar sem hiti var yfir meðallagi fram til 19. maí en eftir það kólnaði verulega. Fram kemur á vef Veðurstofu Íslands að það þarf að fara aftur til ársins 1952 til að finna kaldari júnímánuð á Akureyri, þar sem meðalhitinn var einungis 6,7 stig, sem er 2,4 gráðum undir meðallagi. Aðeins tveir aðrir júnímánuðir hafa verið kaldari síðan mælingar hófust, var það á árunum 1881, 1882 og 1907. Þau ár voru talsvert kaldari en nú, kaldast árið 1882 með meðalhitann 4,4 stig.

Má segja að sumarið hafi loksins komið með hlýnandi veðri í júlímánuði þar sem meðalhiti fór upp í 12 stig á Akureyri, sem er 1,2 stigum yfir meðallagi. En lítið hafði rignt á kuldaskeiðinu og versnuðu þurrkarnir í júlímánuði. Á Akureyri mældist úrkoman aðeins 8,8 mm sem er einungis rúmur fjórðungur af meðalúrkomu, en samkvæmt mælingum Veðurstofunnar þarf að leyta aftur til ársins 1929 til að finna minni úrkomu í júlí en nú.

Léleg uppskera

Í lok júlí fór loks að rigna og þar sem hlýtt var í lofti tók grasið að spretta. Að sögn Eiríks hafa túnin tekið misvel við sér og er það mjög breytilegt á milli svæða. „Grassprettan lítur betur út þar sem er nýrækt og mýrlendi. Svo geta skúrir sumstaðar einnig skipt sköpum.“ segir Eiríkur. Sumstaðar er uppskeran jafnvel betri en í fyrra en í heildina litið er hún fremur léleg. „Margir koma til með að fá of litla uppskeru og það verður víða vöntun á heyi. Það þyrfti ansi mikið að gerast til að breyting yrði þar á.“

Eiríkur bætti við að staðan verður ekki að fullu ljós fyrr en eftir seinni slátt sem verður í lok ágúst, byrjun september.

Fleiri fréttir