Viðhald á fasteignum ríkisins um allt land boðið út
Nú er tækifæri fyrir verktaka að komast í rammasamning ríkisins um viðhaldsþjónustu fasteigna en nýtt rammasamningsútboð á þjónustu verktaka í iðnaði nær til viðhaldsverkefna á fasteignum ríkisins um allt land. Útboðið tekur til fjölda iðngreina / þjónustuaðila s.s. blikksmiða og annarra málmiðnaðarmanna, málara, múrara, pípulagningamanna, rafiðnaðarmanna og trésmiða auk dúkara og skrúðgarðyrkjumanna.
Sú breyting hefur verið gerð frá síðasta útboði að nú er boðið út á landsvísu í stað eingöngu á höfuðborgarsvæðinu áður og þjónustu dúkara og skrúðgarðyrkjumanna hefur verið bætt við þannig að samningurinn ætti að geta þjónað þörfum ríkisins um viðhald jafnt á fasteignum sem lóðum.
Áhugasamir bjóðendur geta haft samband við Ríkiskaup og fengið leiðbeiningar í tilboðsgerð sem auðveldar þátttakendum að gera sín tilboð sem best úr garði.