Viðsnúningur í rekstri

Ársreikningur sveitarsjóðs og stofnana Svf. Skagastrandar var samþykktur á fundi sveitarstjórnar þann 13. maí sl. Í fundargerð kemur fram að rekstrarniðurstaða ársins hafi verið neikvæð um 18,8 millj.kr. sem er viðsnúningur frá árinu 2013, en þá var 66,3 millj.kr. jákvæð afkoma af rekstrinum. Eigið fé í árslok nam 1.190 millj.kr. og eiginfjárhlutfallið var 72,9% í lok árs 2014, sbr. 72,0% árið 2013.

Í ársreikningi kemur fram að rekstrartekjur samstæðunnar voru 526 millj.kr. og hafa lækkað um 2,1% milli ára. Rekstrargjöld samstæðu námu 560 millj.kr. en voru 480,8 millj.kr. 2013. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar er 8,2 millj.kr. lakari en fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir en áætluð rekstrarafkoma ársins var neikvæð um 10,5 millj.kr.

Veltufjárhlutfall samstæðunnar nam 12,37 en var 8,65 í árslok 2013. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi var veltufé frá rekstri samstæðunnar 32,4 millj.kr. og handbært fé til rekstrar nam 2,2 millj.kr. Handbært fé samstæðunnar nam 439,9 millj.kr. í árslok auk 158 millj.kr. skammtímaverðbréfaeignar en handbært fé var 520,8 millj.kr.í árslok 2013 og þá nam skammtímaverðbréfaeign 169,3 millj.kr. Engin ný lán voru tekin á árinu.

Fleiri fréttir