Vígsluleikur á knattspyrnuvellinum í Kirkjuhvammi
Nýi knattspyrnuvöllurinn í Kirkjuhvammi á Hvammstanga verður vígður laugardaginn 18. ágúst nk. en þá mun sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar í 4. flokki karla taka á móti Hetti frá Egilsstöðum. Leikurinn hefst kl. 11:30.
Samkvæmt Norðanátt.is er leikurinn liður í Íslandsmóti 4. flokks karla og er sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar efst í E-riðli A-liða með 28 stig eins og staðan er í dag.
Upplýsingar um leiki riðilsins og stöðuna má sjá á vef KSÍ eða með því að smella hér. Allir á völlinn!