Vilja að starfsmaður hafi aðsetur í sveitarfélaginu
Skúli Skúlason rektor háskólans á Hólum mætti í gær ásamt Kristinu Tryselius deildarstjóra ferðamáladeildar Háskólans á Hólum. til fundar við bæjarráð Blönduósbæjar. Á fundinum kom fram að gerðar hafa verið breytingar á starfmannahaldi við háskólasetur á Blönduósi þar sem einum starfsmanni hefur verið sagt upp.
Gerði Skúli grein fyrir því að ákveðin aðili gæti komið til greina til þess að taka við starfinu. Lýstu bæjarfulltrúar þeirri skoðun sinni að þeir teldu mikilvægt að starfamaðurinn hefði aðsetur í sveitarfélaginu Blönduós en ekki á Hólum.
Þá gerði Skúli á fundinum i grein fyrir aðdraganda að stofnun Háskólasetursins og þeim verkefnum sem setrið hefur verið að vinnu síðustu misseri. Jafnframt kynnti Skúli áform setursins næstu mánuðina.