Vilja að Steingrímur íhugi stöðu sína sem formaður VG
Á sameiginlegum fundi svæðisfélaga Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Húnavatnssýslu og Skagafirði sem haldinn var í gær á Blönduósi var skorað á formann flokksins,Steingrím J. Sigfússon, að íhuga alvarlega stöðu sína sem formaður flokksins í ljósi atburða undanfarinna vikna.
Fundurinn sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
Fundur Svæðisfélaga VG í Húnaþingi og Skagafirði, haldinn á Blönduósi 16. janúar 2012, beinir því til formanns flokksins, Steingríms J. Sigfússonar, að íhuga alvarlega stöðu sína sem formaður flokksins í ljósi atburða undanfarinna vikna. Stefna og athafnir flokksforystunnar eru að hrekja í burtu stóran hluta þeirra er kusu flokkinn í síðustu alþingiskosningum.