Vilja aðalskipulagið úr biðstöðu

Skipulagsstofnun synjaði Húnavatnshreppi um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í landi Æsustaða í Langadal og segir það vera vegna þess að framkvæmdin sé ekki í samræmi við stefnu aðalskipulags. Hreppsnefnd Húnavatnshrepps harmar þessa afstöðu Skipulagsstofnunar, samkvæmt bókun í fundargerð 116. fundar Hreppsnefndar, sem haldinn var 15. febrúar sl. og óskar jafnframt eftir því að umhverfisráðherra endurskoði ákvörðun sína um að fresta staðfestingu aðalskipulags á svokallaðri Húnavallaleið.   

Á fundinum var farið yfir bréf sem Skipulagsstofnun sendi Húnavatnshreppi dagsett 12. janúar 2012. Í bréfinu segist stofnunin ekki geta mælt með útgáfu framkvæmdaleyfis, sem fyrr segir, og að fyrirhuguð efnistaka sé ekki í samræmi við stefnu aðalskipulags sem þegar hafði verið auglýst og samþykkt í sveitarstjórn og bíður staðfestingar ráðherra. Jafnframt hvetur Skipulagsstofnun sveitarstjórn til að ganga frá aðalskipulaginu í samræmi við ákvörðun umhverfisráðherra þannig að skortur á staðfestu aðalskipulagi fresti ekki að óþörfu framkvæmdaáformum.

Í kjölfarið lagði Hreppsnefnd fram eftirfarandi bókun:

„Hreppsnefnd Húnavatnshrepps harmar það að Skipulagsstofnun skuli ekki geta mælt með útgáfu framkvæmdaleyfis vegna efnistöku í landi Æsustaða í Langadal. Umhverfisráðherra hefur afgreitt aðalskipulag Húnavatnshrepps með fyrirvara um að fresta beri skipulagi á því svæði þar sem ný veglína hringvegar um  svokallaða Húnavallaleið liggur. Hreppsnefnd er ekki sátt við fyrirvara umhverfisráðherra og því liggur skipulagið óstaðfest í ráðuneytinu.“

Þá kemur fram að Innanríkisráðherra hafi upplýst að ekki sé gerð tillaga um flutning á hringveginum frá Blönduósi yfir á nýja Svínvetningabraut (Húnavallaleið), í tillögum að tólf og fjögurra ára samgönguáætlun. Jafnframt lítur hann svo á að flutningur hringvegarins eigi ekki að vera viðfangsefni skipulagsyfirvalda nema sveitarfélögin sjálf óski eftir því.

„Í ljósi þessara upplýsinga var sveitarstjóra falið, að höfðu samráði við fulltrúa Blönduóss, að óska eftir því að umhverfisráðherra endurskoði ákvörðun sína um að fresta beri staðfestingu aðalskipulags á svokallaðri Húnavallaleið,“ segir í fundargerð. 

Fleiri fréttir