Vilja breyta framtíðarskipan refaveiða

Lögð hefur verið fram tillaga til þingsályktunar um breytta framtíðarskipan refaveiða á Íslandi. Það er Ásmundur Einar Daðason sem er fyrsti flutningsmaður tillögunnar en með honum eru einnig samflokksmenn hans sem og alþingismenn úr Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki.

Tillagan gerir ráð fyrir að Alþingi álykti að fela umhverfisráðherra að breyta framtíðarskipan refaveiða með það að markmiði að refastofninum verði haldið innan eðlilegra marka en svo það náist feli breytingarnar eftirfarandi í sér:

  •     a.     að refaveiðar verði ekki bannaðar á ákveðnum landsvæðum,
  •     b.     að teknar verði aftur upp greiðslur úr ríkissjóði vegna fækkunar refa,
  •     c.     að rannsóknir verði á hendi vísindamanna en veiðistjórnun, þ.e. skipulagning, stjórnun og leiðbeiningarþjónusta við veiðimenn, á hendi reyndra veiðimanna,
  •     d.     að samið verði við Samband íslenskra sveitarfélaga eða landshlutasamtök sveitarfélaga um að sjá um skipulagningu veiðanna og greiðslur til veiðimanna,
  •     e.     að greiðslur fyrir hlaupadýr og grenjavinnslu verði þær sömu um land allt.

Umhverfisráðherra leggi fyrir Alþingi fyrir 1. apríl 2012 frumvarp til laga um þau atriði sem krefjast lagabreytinga.

Flutningsmenn eru: Ásmundur Einar Daðason, Gunnar Bragi Sveinsson, Vigdís Hauksdóttir, Birkir Jón Jónsson, Höskuldur Þórhallsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Einar K. Guðfinnsson, Ólöf Norðdal, Jón Gunnarsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Árni Johnsen.

Fleiri fréttir