Vilja fund vegna aðkomu framkvæmdastjórnar ESB að málarekstri ESA gegn Íslandi

Framsóknarmennirnir Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafa óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd Alþingis hið fyrsta til að ræða þá ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að innvinkla sig í málarekstur ESA gagnvart Íslandi. 

-Evrópusambandið ætlar að styðja kröfur ESA gagnvart Íslandi og útilokað að láta eins og ekkert sé og halda áfram viðræðum um aðild að ríkjasambandi sem styður óréttmætan málarekstur gagnvart Íslandi, segir í tilkynningu frá þeim Gunnari og Sigmundi. Einnig er þess krafist að sendiherra ESB á Íslandi verði boðaður á fundinn og að fundurinn verði gestafundur.

Beiðnin var send út í gærkvöldi vegna fréttar á RUV um aðild ESB að málshöfðuninni gagnvart Íslandi.

Fleiri fréttir