Viljayfirlýsing um rekstur náttúrustofu
Fjögur sveitarfélög á Norðurlandi vestra hafa samþykkt viljayfirlýsingu um rekstur Náttúrustofu Norðurlands vestra, en starfsemi hennar hefur legið niðri undanfarin misseri. Samþykktir Húnaþings vestra og Skagastrandar voru gerðar með því skilyrði að hluti starfseminnar yrði í þeim sveitarfélögum.
Drög að viljayfirlýsingunni hljóða svo:
Sveitarfélögin Skagafjörður, Akrahreppur, Húnaþing vestra og Skagaströnd eru sammála um að standa saman að því að efla og tryggja rekstur Náttúrustofu Norðurlands vestra. Öðrum sveitarfélögum á Norðurlandi vestra stendur til boða að taka þátt í þessu samstarfi óski þau eftir því.
Starfsemi Náttúrustofunnar verður efld með því að koma á starfsstöðvum á Hvammstanga og Skagaströnd auk núverandi starfsstöðvar á Sauðárkróki. Stefnt er að því að við Náttúrustofuna séu 1,5-2 stöðugildi sem skipt verður eftir frekara samkomulagi. Til þess að fjármagn til rannsókna nýtist sem best skulu starfsstöðvarnar leita samstarfs við fyrirtæki og stofnanir á hverjum stað sem sinna skyldum verkefnum – Selasetrið á Hvammstanga, Biopol á Skagaströnd og Háskólann á Hólum í Skagafirði. Jafnframt skal Náttúrustofan leita samstarfs við sem flesta aðila, innlenda sem erlenda, um rannsóknir á náttúru Norðurlands vestra.
Stjórn náttúrustofunnar verður skipuð af fulltrúum þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að rekstri hennar. Forstöðumaður Náttúrustofunnar á móti framlagi ríkisins. Framlög sveitarfélaganna skiptast í hlutfalli við íbúafjölda.