Vilko og Prima flytja í mjólkurstöðina
Fyrirtækið Vilko á Blönduósi hefur flutt starfsemi sína í húsnæði að Húnabraut 33 á Blönduósi, sem áður hýsti mjólkurstöðina. Sagt er frá þessu á Húnahorninu og þar kemur fram að búið sé að hreinsa allt út úr því húsnæði sem minnti á mjólk og mjólkurframleiðslu.
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að flytja starfsemi Vilko og Prima yfir í umrætt húsnæði, frá Ægisbraut 1. Áhaldahús Blönduósbæjar flyst nú aftur þangað.
Vilko var upphaflega stofnað árið 1969 í Kópavogi en árið 1986 keypti Kaupfélag Húnvetninga félagið og flutti norður á Blönduós. Var starfsemin upphaflega í Votmúla en þegar það húsnæði brann flutti félagið starfsemina á Ægisbraut þar sem áður var áhaldahús Blönduósbæjar.