Vill beita skattkerfinu til að styrkja byggðir landsins

Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveinsson

Gunnar Bragi Sveinsson, landbúnaðar-, sjávarútvegs- og byggðamálaráðherra, hyggst láta skoða hvernig beita megi skattkerfinu á því hvernig beita megi skattkerfinu við að styrkja byggðir landsins.

Skýrði hann frá þessu í ræðu sinni á atvinnumálaráðstefnu sem sveitarfélagið Fljótsdalshérað efndi til á fimmtudaginn. Jákvæðir hvatar í gegnum skattkerfið hafa gefist vel í nágrannalöndunum, til að mynda Noregi og Svíþjóð.

„Það er okkur lífsnauðsynlegt að landið sé í blómlegri byggð og það er ekki bara tilfinning heldur þjóðhagslega mikilvæg aðgerð. Við þurfum að skoða hvað hentar. Borgar þetta sig, viljum við gera þetta með þessum hætti?“ sagði Gunnar Bragi meðal annars  í ræðu sinni.

Nefndi hann ýmsar færar leiðir, til að mynda að fella niður hluta af námslánum þeirra sem settust að á landsbyggðinni að námi loknu. Sagði hann vinnuna í takt við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna um byggðaáætlun. Þá vinnur Byggðastofnun einnig að mótun byggðaáætlunar til næstu sjö ára og hefur umrædd vinna verið leidd af Byggðastofnun.

Gunnar Bragi ræddi sérstaklega um möguleika í matvælaframleiðslu þar sem ríkisstjórnin samþykkti nýverið að veita 80 milljónum króna í fimm ár í verkefni undir merkjum Matvælalandsins Íslands. Hann sagði vaxandi eftirspurn eftir mat á heimsvísu, meðal annars með fjölgun jarðarbúa, skapa íslenskum landbúnaði sóknarfæri.

Á ráðstefnunni sagði Gunnar Bragi að hann teldi að byggðamál ættu heima í forsætisráðuneytinu þar sem unnið væri að samhæfingu. Kæmu þau inn á ýmist svið, svo sem heilbrigðismál og samgöngur. Einnig yrði að tryggja að samræmi væri í aðgerðum ráðuneytanna, það að“þegar eitt bætti við tveimur störfum á svæðinu færi það næsta ekki með þrjú í burtu.“

Fleiri fréttir