Vill byggja 20 íbúða fjölbýlishús á Blönduósi

Frá Blönduósi. Mynd: KSE
Frá Blönduósi. Mynd: KSE

Fyrirtækið Uppbygging hefur óskað eftir að fá að byggja 20 íbúða fjölbýlishús á fimm hæðum á Blönduósi og er áætlað að verktími standi frá vori 2017 til vors 2018.

Uppbygging ehf. er í eigu Engilberts Runólfssonar byggingaverktaka. Engilbert rak á árum áður fyrirtækið Stafna á milli sem keypti m.a. eitt umsvifamesta byggingafélag landsins Ris ehf. árið 2007. Ris varð gjaldþrota 2010 en um 330 störfuðu hjá fyrirtækinu þegar mest lét, eftir því sem greint er frá á Húna.is.

Bæjarráði Blönduósbæjar barst fyrirspurn frá einkahlutafélaginu Uppbyggingu, um lóð á Blönduósi sem afmarkast af Húnabraut 4, austurenda íþróttavallar, Holtabrautar og Melabrautar. Byggðarráð fagnar erindinu. Var hún tekin fyrir á fundi byggðarráðs síðastliðinn föstudag. Byggðaráð fagnaði erindinu og þakkaði auðsýndan áhuga á uppbyggingu á Blönduósi. Sveitarstjóra og tæknideild var falið að vinna frekar að málinu.

Fleiri fréttir