Vill ræða hugmyndir um friðun á svartfugli
Ásmundur Einar Daðason hefur óskað eftir fundi hjá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hið fyrsta til að ræða hugmyndir um 5 ára friðun á svartfuglum.
Óskað er eftir því að fulltrúi umhverfisráðuneytis mæti á fundinn, auk fulltrúa allra þeirra aðila sem upphaflega áttu sæti í starfshóp ráðherra og skilaði nýverið af sér skýrslu, er kemur fram í bréfi Ásmundar Einars til nefndarinnar.
Einnig óskar hann eftir því að fulltrúar samninganefndar Íslands vegna ESB umsóknarinnar komi á fundinn, í ljósi þess að um er að ræða fuglategundir sem ESB krefst veiðibanns á.