Vill veiða fisk til handa bágstöddum

Valdimar Ásgeirsson, bóndi á Auðkúlu, hefur sent Húnahorninu bréf þar sem hann veltir upp þeirri hugmynd að bændur við Svínavatn í Húnaþingi og aðrir húnvetningar standi fyrir sameiginlegum veiðum í vatninu. Aflinn verði gefinn til Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálparinnar.

Í erindi Valdimars segir; -Eins og landsmenn þekkja, er nú á síðustu og verstu tímum gríðarleg þörf á að aðstoða fjölda fjölskyldna, einkum á Reykjavíkursvæðinu. Ég hef heimildir fyrir því að fjöldi þeirra sem leita ásjár hjá Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálpinni fari ört vaxandi með viku hverri.  Fjöldi þeirra sem leggja Mærastyrksnefnd og Fjölskylduhjálpinni lið í fórnfúsu starfi þeirra fer sem betur fer einnig vaxandi. En betur má ef duga skal. Aukin fátækt og matarleysi er smánarblettur á íslensku samfélagi.

Skorar Valdimar á sveitunga sýna að leggja sitt af mörkum og gefa fátækum kost á að njóta af f "gnægtaborði Svínavatns".

Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa til við að hrinda þessarri hugmynd í framkvæmd, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Valdimar í síma 868-7951, eða senda e-mail á; velar@emax.is Þá segir hann að vanti að láni í nokkra daga;

Silunganet og tilheyrandi, einnig sæmilegan bát, (helst með mótor).

Svo vantar fólk sem er tilbúið til að aðstoða við veiðar og aðgerð í 2-3 daga.

Fleiri fréttir