Viltu taka þátt í að gera ,,Heim að Hólum á aðventu" enn skemmtilegra?
Skipuleggjendur viðburðarins "Heim að Hólum á aðventu" sem verður haldinn laugardaginn 9. desember nk. leita að einstaklingum eða hópum sem hafa áhuga á að selja eða kynna vörur sínar eða varning, vera með lifandi tónlist, lesa upp úr bókum eða bara það sem þeim dettur í hug að gera og gæti verið skemmtileg viðbót við það sem komið er. Áhugasamir geta haft samband við Róbert Óttarsson á roberto@holar.is.