Vináttudagurinn í Blönduskóla í dag
Blönduósbúar geta átt von á því að hitta nemendur Blönduskóla sem verða á þönum um allan bæ í dag, en þeir munu vera að halda upp á vináttudaginn sem fram fer í skólanum. Á Húna.is segir að á vináttudaginn og næstu daga þar á eftir munu nemendur skólans afhenda kveðjur til fyrirtækja á staðnum í stuttum heimsóknum en einnig munu þeir bjóða Húnvetningum öllum, sem og ferðamönnum, að taka þátt í vinaverkefni sem sett verður upp í Samkaupum.
Nemendur í unglingadeild munu setja upp „stauraljóð“ á ljósastaura í bænum og eru bæjarbúar hvattir til að gefa sér stund og lesa stauraljóðin sem þeir rekast á. Ef til vill verða einhver fleiri vinaleg verkefni í gangi og er vonast til að af þessu verði góð skemmtun fyrir alla sem að koma.