Vinnandi vegur - átak gegn langtímaatvinnuleysi
Stefnt er að því að ráða til starfa allt að 1.500 manns af atvinnuleysisskrá í tengslum við sameiginlegt átak atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins gegn langtímaatvinnuleysi samkvæmt tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu. Vinnumálastofnun stýrir átakinu sem beinist einkum að fólki sem verið hefur án atvinnu í eitt ár eða lengur.
Með átakinu verður lögð áhersla á sameiginlegan ávinning þátttakenda þar sem atvinnurekendum er auðveldað að ráða fólk til starfa og atvinnuleitendum gefst tækifæri til þátttöku í atvinnulífinu. Með ráðningu starfsmanns samkvæmt skilyrðum átaksins fær viðkomandi fyrirtæki eða stofnun ráðningarstyrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nemur fullum atvinnuleysisbótum, þ.e. 167.176 krónum á mánuði, auk 8% framlags í lífeyrissjóðs. Starfsmanninum eru tryggð laun samkvæmt kjarasamningi og greiðir atvinnurekandinn það sem á vantar.
Ef ráðinn er starfsmaður sem verið hefur án atvinnu í tólf mánuði eða lengur er greiddur 167.176 kr. ráðningarstyrkur í allt að eitt ár. Hafi viðkomandi verið án atvinnu í skemmri tíma er greiddur ráðningarstyrkur sem miðast við bótarétt starfsmannsins í allt að sex mánuði.
Átakið er tímabundið og þurfa atvinnurekendur sem vilja ráða fólk til starfa á grundvelli þess að ganga frá ráðningum fyrir 1. júní næstkomandi. Við ráðningu starfsmanns skrifar atvinnurekandi undir þríhliða ráðningarsamning sem gerður er milli atvinnuleitanda, atvinnurekanda og Vinnumálastofnunar. Ráðningarmiðlunin vottar samninginn og sendir Vinnumálastofnun til staðfestingar og afgreiðslu styrks.
Sjá nánar HÉR