Vinningshafar í stimplaleik Sögulegrar safnahelgar

Söguleg safnahelgi var haldin Norðurlandi  vestra 13.-14. október sl. Einn skemmtilegur hluti hennar að mati skipuleggjenda var stimplaleikurinn. Með því að safna stimplum í heimsóknum á einstök söfn og setur gátu gestir tekið þátt í leiknum og komist í lukkupottinn. Búið er að draga heppna þátttakendur út og eru veglegir vinningarnir heimafengnir.

1.         Gisting og jólahlaðborð fyrir tvo á Hótel Varmahlíð hlaut Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Þverbraut 1, 540 Blöndósi

2.         Riverrafting fyrir fjóra í Jökulsá vestari sumarið 2013 hjá Bakkaflöt ferðaþjónustu kom í hlut Sigrúnar Einarsdóttur, Bjargshóli, 531 Hvammstanga.

3.         Málsverður fyrir tvo á Eyvindarstofu á Blönduósi fær Sigríður Ósk Jónsdóttir að njóta en hún er frá Gillastöðum, 371 Búðardal

4.         Ingibjörg Sigurðardóttir, Auðólfsstöðum, 541 Blönduósi fær svo frían aðgang sumarið 2013 fyrir eina fjölskyldu á söfn og setur sem tóku þátt í Sögulegri safnahelgi 2012 .

 

Skipulagsnefnd helgarinnar vill þakka öllum þeim sem lögðu sitt að mörkum til að gera helgina að þeim skemmtilega viðburði sem hún var. Þeir sem nýttu sér tækifærið til að heimsækja söfnin og setrin skemmtu sér vel og hægt er að hlakka til að ári. Stefnan er að þróa hugmyndina áfram, þannig að helgin verði hluti af huggulegu hausti á Norðurlandi vestra í framtíðinni. Við erum bara rétt lögð af stað, segir í tilkynningu frá Sögulegri safnahelgi.

Fleiri fréttir