Vonbrigði með nýja reglugerð Jóns Bjarnasonar
Stjórn Frjálslynda flokksins lýsir yfir miklum vonbrigðum með nýja reglugerð Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um strandveiðar á komandi sumri. -Áfram á að brjóta mannréttindi á íslenskum sjómönnum með vitund og vilja manna sem lofuðu í aðdraganda kosninga og í stjórnarsáttmála að gera gagngerar breytingar á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi þannig að það stæðist alþjóðasáttmála, segir í ályktun sem stjórn flokksins hefur sent frá sér.
Jafnframt lýsir stjórn Frjálslynda flokksins undrun og hneykslun á vinnubrögðum stjórnvalda sem virðast hafa það eitt að markmiði að ná sáttum við SA/LÍU án þess að huga að því hvað kemur almenningi í landinu til góða, eins og segir í tilkynningu frá flokknum sem skorar á stjórnvöld að gera strandveiðar frjálsar.