Vonskuveður í Skagafirði og Vatnsskarði og Þverárfjalli lokað
Samkvæmt frétt á Rúv.is vill lögreglan á Sauðárkróki koma því á framfæri til vegfarenda að Vatnsskarði hafi verið lokað. Þverárfjallsvegur verður opinn til klukkan átta í kvöld en verður þá lokað. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að áfram verði ofanhríð og slæmt skyggni á fjallvegum norðanlands í kvöld og nótt.
Veður fer versnandi frá því sem verið hefur á norðausturhorninu í kvöld og nótt frá Melrakkasléttu austur í Vopnafjörð og þar verður él og krapi í fyrramálið. Almennt séð kólnar heldur og snjórinn nær því heldur neðar á vegunum í fyrramálið en hefur verið í dag og krapi verður víða á láglendi. Rafmagn fór af á Sauðárkróki upp úr kl. 16 í dag en komst aftur á um þremur tímum síðar.