Vonskuveður olli vandræðum

Þessi bíll lenti útaf í kafladsbyl. Mynd: Björgunarfélagið Blanda.
Þessi bíll lenti útaf í kafladsbyl. Mynd: Björgunarfélagið Blanda.

Á föstudaginn var greint frá því á vef Húnahornsins að veturinn væri mættur í Húnavatnssýslur og líklega kominn til að vera. Þar var, eins og víða annars staðar, vonskuveður á fimmtudaginn og einnig á föstudag.

Á lögreglan á Blönduósi og Björgunarsveitir að koma bílstjórum til aðstoðar. Á föstudagsmorguninn aðstoðaði lögreglan á Blönduósi til að mynda bílstjóra og farþega í fjórum bílum. Höfðu bílstjórarnir, sem voru erlendir ferðamenn, misst sjónar á veginum í kafaldsbyl og lent utan vegar.

Rætt var við Höskuld B. Erlingsson, varðstjóra hjá lögreglunni á Blönduósi í Ríkisútvarpinu og sagði hann að þar á bæ væru menn nokkuð uggandi yfir vetrinum, sérstaklega ef tíðin yrði umsviptingasöm og ferðamönnum héldi áfram að fjölga.

 

Fleiri fréttir