Vorlestin á ferðinni á Norðurlandi vestra

Lífland heldur af stað í Vorlestina í dag og kemur við á 15 stöðum umhverfis landið á næstu dögum, með viðkomu á Varmahlíð, Blönduósi og Staðarskála. Vorlestin er samstarfsverkefni Jötuns, Líflands, Skeljungs, Mjallar-Friggjar, IB á Selfossi og Landsbankans.

Megintilgangurinn er að kynna vörur og þjónustu fyrirtækjanna og verður fyrsti viðkomustaðurinn Hvolsvöllur þann 16. apríl, en vorlestin endar svo á Selfossi miðvikudaginn 22. apríl.

„Lífland verður með vörubíl með uppsettum sýningarbás þar sem sem söluráðgjafar okkar verða til skrafs og ráðagerða. Enginn fer tómhentur heim þar sem við gefum fóðurskóflur, húfur og penna á staðnum. Flott sértilboð verða í verslunum Líflands og hjá helstu endursöluaðilum um landið þegar Vorlestin kemur við. Heitt verður á könnunni í bílnum okkar og gott með kaffinu. Önnur fyrirtæki Vorlestarinnar verða jafnframt með ýmiskonar gjafir og áhugaverðar kynningar og ættu því allir bændur að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir á vef Líflands.

Viðkomustaðir Vorlestarinnar á NLV:

  • Varmahlíð  sunnudaginn 19. apríl // Hótel Varmahlíð kl. 16:00-19:00
  • Blönduós mánudaginn 20. apríl // Lífland kl. 10:00-12:00
  • Staðarskáli mánudaginn 20. apríl // Staðarskáli kl. 14:00-16:00

Fleiri fréttir