Vorsýning nemenda Blönduskóla
Í dag, miðvikudaginn 16. maí, verður haldin sýning á munum sem nemendur Blönduskóla hafa búið til í textíl- og myndmennt, listasmiðju og fatasaumi. Einnig verður sýnishorn af verkum nemenda í heimilisfræði, „en þau gætu horfið fljótlega eftir að sýning hefst svo það er um að gera að drífa sig snemma af stað,“ segir á heimasíðu skólans.
Einnig munu nemendur úr 9. og 10. bekk, sem fóru í tveggja helga verknám í FNV sýna afrakstur dvalar sinnar við Fjölbrautaskólann.
Sýningin verður í nýja skóla og stendur frá 16 - 19. Tískusýning verður kl. 17:15.