Vortónleikar í Blönduóskirkju

Kirkjuorgelið fallega í Blönduóskirkju. AÐSEND MYND
Kirkjuorgelið fallega í Blönduóskirkju. AÐSEND MYND

Sunnudaginn 28. apríl vera haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða. Mun hann leika vel valin orgelverk.

Tónleikarnir hefjast kl. 17:00

Markmiðið með tónleikunum er að stíga lokaskrefin í að greiða upp lán vegna orgelsins en 500.000 krónur eru eftir af láninu. Því verður tekið við frjálsum framlögum í formi aðgangseyris. Samfélagssjóður Landsvirkjunar styrkir tónleikana.

- - - - - -
Ef einhverjir sjá sér ekki fært að mæta en vilja leggja málefninu lið þá má leggja inn á reikning Blönduóskirkju nr. 307 26 4701 kt. 4701691689

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir