Vortónleikar Kórs Neskirkju

Kór Neskirkju heldur vortónleika í Hvammstangakirkju og Þingeyrakirkju um helgina Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og inniheldur m.a. verk eftir tónskáldin Hildigunni Rúnarsdótturm G. A. Palestrina og Ola Gjeilo. Stjórnandi er Steingrímur Þórhallsson.

Tónleikarnir á Hvammstanga fara fram laugardaginn 8. júní nk. og hefjast kl. 17:00.

Tónleikarnir í Þingeyrarkirkju fara fram sunnudaginn 9. júní nk. og hefjast kl. 16:00.

Aðgangur er ókeypis á tónleikana. Nánari upplýsingar má finna á vef kórsins.

Kórinn er áhugamannakór, samansettur af áhugasömum og söngleskum einstaklingum úr Neskirkjusókn og víðar af höfuðborgarsvæðinu. Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir