Vörumiðlun ehf tekur við vöruflutningum í Dalabyggð
Þann 1. mars sl. tók Vörumiðlun ehf. við þeim hluta rekstrar KM-Þjónustunnar sem snýr að vöruflutningum til og frá Dalabyggð. KM þjónustan hefur verið með rekstur vöruflutninga í Dölum frá árinu 2000 og í Reykhólasveit frá árinu 2005. Á þeim tíma hafa verið reglulegar áætlunarferðir milli Reykjavíkur, Dala og Reykhólasveitar.
Á heimasíðu Vörumiðlunar segir að KM þjónustan muni hér eftir verða afgreiðsluaðili Vörumiðlunar í Búðardal og verður óbreytt fyrirkomulag frá því sem verið hefur hvað varðar þjónustu, áætlanir og afgreiðslu. Þá verða bílstjórarnir þeir sömu og verið hefur.
„Það er von KM þjónustunnar og Vörumiðlunar að samstarfið verði farsælt og að viðskiptavinir beggja aðila verði fyrir sem minnstum óþægindum á meðan þessar breytingar ganga yfir,“ segir á vorumidlun.is.