Ylfa Mist Helgadóttir leiðir Landsbyggðarflokkinn
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
12.04.2013
kl. 08.18
Landsbyggðarflokkurinn hefur fengið listabókstafnum M úthlutað af Innanríkisráðuneytinu. Konur skipa þrjú efstu sæti listans í NV kjördæmi en Ylfa Mist Helgadóttir, sjúkraliðanemi og söngkona mun leiða listann. M-listi Landsbyggðarflokksins í NV kjördæmi er sem hér segir:
- 1. Ylfa Mist Helgadóttir, sjúkraliðanemi og söngkona
- 2. Steinunn Ýr Einarsdóttir, húsmóðir og nemi
- 3. Sóley Veturliðadóttir, þroskaþjálfi og sérkennslustjóri
- 4. Haukur Már Sigurðarson, verslunarmaður
- 5. Svanur Ingi Björnsson, kjötvinnslumaður
- 6. Guðmundur G. Guðmundsson, skipaskoðunarmaður
- 7. Björgúlfur Egill Pálsson, nemi
- 8. Þorsteinn J. Tómasson, framreiðslumeistari og bifreiðastjóri
- 9. Brynjar Gunnarsson, sjómaður
- 10. Ingunn Ósk Sturludóttir, tónlistarkennari og söngkona
- 11. Guðrún Guðný Long, hársnyrtir og öryrki
- 12. Dagný Þrastardóttir, húsgagnasmiður
- 13. Gunnar Jónsson, myndlistarmaður
- 14. Guðný Sóley Kristinsdóttir, snyrtifræðingur
- 15. Magnús Hávarðarson, tölvu- og kerfisfræðingur
- 16. Guðlaugur Jónsson, vélstjóri