Zumba námskeið á Blönduósi
Sex vikna Zumba námskeið hefst í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi 8. janúar næstkomandi. Kennari er Linda Björk Ævarsdóttir alþjóðlegur Zumba kennari. Kenndir eru dansar eins og salsa, merengue, reggateon, cumbia og samba.
„Zumba er sérlega skemmtileg hreyfing sem hentar öllum aldri en þar er blandað saman dansi og fitness við sjóðheita suður-ameríska tónlist. Hver tími er sannkallað partý sem bætir bæði andlega og líkamlega líðan,“ segir á Húna.is
Tímarnir verða á þriðjudögum kl. 19-20 og fimmtudögum kl. 19-20. Verð fyrir námskeiðið er 17.000 krónur og skal greiðast fyrir 10. janúar 2013.
Innifalið í námskeiði:
- Skemmtikvöld með léttum kvöldverði.
- 10% afsláttur á ávöxtum og grænmeti í Samkaup úrval.
- 7% afsláttur á þjónustu og 5% afsláttur á vörum hjá Gæjar og píur.
Skráning á lindabj@simnet.is eða í síma: 4522945 fyrir 5. janúar 2013.