Zumba partý á Blönduósi
Páska Zumba partý verður haldið í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi laugardaginn 30. mars kl: 11:00-12:30. Kennari verður Linda Björk Ævarsdóttir alþjóðlegur Zumba kennari og eru allir hvattir til að mæta í meiriháttar PÁSKA-PARTÝI ZUMBA en það ku vera það vinsælasta í dag, samkvæmt tilkynningu frá Zumba partýljónunum.
Um er að ræða hörkubrennslu þar sem þú getur dansað þig í form með einföldum sporum, skemmtilegri tónlist og góðum félagsskap. Partýið er jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna og að sjálfsögðu bæði kynin. Einnig mega krakkarnir koma með sem eru 9 ára og eldri.