Zumba partý á laugardagsmorgni
Á Blönduósi byrja margir laugardagsmorgna á því að mæta í Zumbapartí, að minnsta kosti var það þannig síðasta laugardag. Það vakti athygli Feykis hvers konar partí það væru sem hæfust á þessum tíma dags. Því hafði blaðamaður samband við Lindu Björk Ævarsdóttur, alþjóðlegan Zumba kennara á Steinnýjarstöðum í Skagabyggð.
-Ég hef alltaf haft rosalega gaman af að dansa, dansinn á óskaplega vel við mig og er eitt af mínum áhugamálum. Þegar ég kynntist Zumba fitness fyrst þá fannst mér ég hafa himinn höndum tekið! Þvílík tónlist, þvílík brennsla, þvílk æfing og síðast en ekki síst þvílík skemmtun. Þarna var komin æfingaraðferð sem hentaði mér fullkomlega. Og þessu langaði mig til að miðla áfram, svo ég fór og tók kennararéttindi til að kenna Zumba fitness, segir Linda um tildrög þess að hún fór að stunda og kenna Zumba.
-Ég hreinlega elska að kenna þetta og hitta fólkið sem kemur í tímana. Ég er svo búin að bæta við mig réttindum til að kenna Zumba tonning,með lóðum, og einnig Zumbatomic sem er sérsniðið fyrir börn frá 4-12 ára. Ég fór svo af stað með námskeið á Blönduósi í Zumba í byrjun janúar sl. og voru tímar í Zumba tvisvar í viku, segir Linda sem ekur um 30 mínútur hvora leið til að kenna á Blönduósi.
-Einnig kenndi ég í Víðihlíð tvisvar í viku í vetur. Undirtektnirnar voru vonum framar og gat ég nánast ekki sofnað á kvöldin vegna spennings fyrir að koma með nýjan dans í næsta tíma.
Linda lýsir Zumba sem sérlega skemmtilegri hreyfingu sem hentar öllum aldri og báðum kynjum, en í Zumba er blandað saman dansi og fitness við sjóðheita suður-ameríska tónlist ásamt international-stuðlögum. Kenndir eru dansar eins og salsa, merengue, reggateon, cumbia, samba, quebredita, soca, calypso og fl. Hver tími er sannkallað partý sem bætir bæði andlega og líkamlega líðan.
-Ef þú hefur gaman af að dansa og hefur gaman af suður-amerískum ritma, þá er Zumba svo sannarlega eitthvað sem þú ættir að prófa. Það sem fólk talar gjarnan um er að Zumba sé dulin líkamsrækt. Því þú brennir helling af kalóríum, styrkir vöðva og eykur liðleikann á meðan þú skemmtir þér ótrúlega vel við frábæra tónlist, bætir Linda við.
-Sporin eru útfærð á einfaldan hátt og fyrir alla að læra. Og þó að þú sért ekki taktviss þá geturðu svo sannarlega verið með og hreyft þig eftir músíkinni, aðalmálið er að skemmta sér. Það er engin rétt né röng leið til að dansa Zumba. Zumba snýst um gleði , frábæra tónlist og skemmtun. Zumba er partý, sagði Linda Björk að lokum.