Skeifan afhent í 66. skipti

Skeifan. AÐSEND MYND
Skeifan. AÐSEND MYND

Skeifudagurinn fer fram í hestamiðstöð Landbúnaðarháskólans Íslands á Hvanneyri að Mið-Fossum Sumardaginn fyrsta og hefst kl. 13 með fánareið og setningu. Skeifudagurinn dregur nafn sitt af verðlaununum sem veitt eru af Morgunblaðinu sem vildi með þessu framtaki sýna hug sinn til þessarar fornu og fögru íþróttar, hestamennskunnar. Skeifuna hlýtur sá nemandi sem efstur stendur á prófi í tamningu og reiðmennsku. Auk Skeifunnar er einnig keppt um Gunnarsbikarinn, Eiðfaxabikar, Ásetuverðlaun Félags tamingarmanna og Framfaraverðlaun Reynis.

Helgi Eyleifur Þorvaldsson brautarstjóri búfræðibrautar ávarpar gesti. Gestir geta notið þess að kynnast nánar nemendum og hrossum þeirra sem þau hafa tamið og þjálfað í vetur. Fánareið, sýningaratriði og úrslit í Gunnarsbikarnum verða á dagskrá og að lokinni verðlaunaafhedingu verður dregið í stóðhestahappadrætti Grana. Sigríður Bjarnadóttir brautarstjóri hestafræðibrautar lokar dagskrá í reiðhöllinni og verður hægt að kaupa kaffiveitingar til styrktar búfræðinemendum sem stefna í útskriftarferð í vor.

Áhersla á hestamennskutengda áfanga má rekja til ársins 1954 þegar Gunnar Bjarnason ásamt nemendum stofnuðu hestamannafélagið Grana. Á þem tíma var áhugi meðal nemenda að efla hestamennskutengda áfanga og var Gunnar upphafsmaður kennslu í reiðmennsku og tamningum við skólann. Mikið vatn hefur nú runnið til sjávar síðan þá en hefðin að halda Skeifudag á Sumardaginn fyrsta hefur haldist allar götur síðan 1957.

- Fréttatilkynning frá LBHÍ á Hvanneyri

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir