Úrslit frá Skagfirsku mótaröðinni - Fjórgangur og slaktaumatölt
Skagfirska mótaröðin í hestaíþróttum hóf göngu sína föstudaginn 2. mars í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki með keppni í flokki V5 hjá börnum, unglingum og ungmennum; 1. og 2. flokki og T2, opnum flokki. Kvenfólkið var afar sigursælt á mótinu en þær skipuðu sigursætin í fimm flokkum af sex. Næsta mót verður haldið föstudagskvöld 9. mars og hefst klukkan 18:30. Þá er keppt í F2, ungmenna-, 1. og 2. Flokki; T7, barna-, unglinga- og opnum flokki.
Alls verða fjögur keppniskvöld í Skagfirsku mótaröðinni en fimmta og jafnframt síðasta mótið verður haldið laugardaginn 14. apríl en þá keppa efstu knapar í mótaröðum hestamannafélaganna Léttis, Neista, Skagfirðings og Þyts.
Úrslit frá fyrstu keppni Skagfirsku mótaröðinni:
Fjórgangur V5 - barnaflokkur
1 Þórgunnur Þórarinsdóttir Flipi 6,42
2 Margrét Ásta Hreinsdóttir Hrólfur 4,96
3 Kristinn Örn Guðmundsson Indriði 4,92
4 Sandra Björk Hreinsdóttir Demantur 4,88
5 Sara Líf Elvarsdóttir Þokkadís 4,50
Fjórgangur V5 - unglingaflokkur
1 Stefanía Sigfúsdóttir Ljómi 6,63
2 Freydís Þóra Bergsdóttir Ötull 6,33
3 Björg Ingólfsdóttir Morri 6,13
4 Lara Margrét Jónsdóttir Burkni 6,04
5 Rakel Gígja Ragnarsdóttir Vídalín 5,58
Fjórgangur V5 - ungmennaflokkur
1 Guðmar Freyr Magnússon Sigurvon 5,96
2 Gyða Helgadóttir Freyðir 5,71
3 Ásdís Brynja Jónsdóttir Birta 5,50
4 Guðný Margrét Siguroddsdóttir Reykur 5,46
Fjórgangur V5 - 2. flokkur
1 Birna M Sigurbjörnsdóttir Gammur 6,21
2 Nicolina Marklund Oktavía 5,83
3 Hugrún Lísa Heimisdóttir Dáð 5,50
4 Aðalheiður Einarsdóttir Brúnkolla 5,50
5 Lina Andrea Johansson Vakandi 5,46
Fjórgangur V5 - 1. flokkur
1 Rósanna Valdimarsdóttir Sprækur 6,00
2 Klara Ólafsdóttir Vígar 5,88
3 Brynjólfur Jónsson Steinunn 5,63
4 Þorsteinn Björn Einarsson Kliður 5,54
5 Heiðrún Ósk Eymundsdóttir Gyllir 0 Rautt spjald - fær ekki einkunn
T2 Slaktaumatölt - opinn flokkur
1 Sigríður Vaka Víkingsdóttir 6,92
2 Lea Christine Busch 6,50
3 Auður Inga Ingimarsdóttir 6,21
4 Heiðrún Ósk Eymundsdóttir 6,21
5 Kolbrún Stella Indriðadóttir 5,63
Sjá nánar HÉR
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.