Védís Huld Sigurðardóttir sigraði í slaktaumatölti Meistaradeildar KS

Védís Huld Sigurðardóttir efst á palli en feðgarnir Bjarni Jónasson og Finnbogi Bjarnason skör lægra. Myndir af FB-síðu Meistaradeildar KS.
Védís Huld Sigurðardóttir efst á palli en feðgarnir Bjarni Jónasson og Finnbogi Bjarnason skör lægra. Myndir af FB-síðu Meistaradeildar KS.

Keppni í slaktaumatölti T2 í Meistaradeild KS í hestaíþróttum fór fram á Sauðárkróki sl. miðvikudagskvöld, 5. apríl. Á Facebooksíðu keppninnar segir að A-úrslitin hafi verið gríðarlega skemmtileg og fór svo að Védís Huld Sigurðardóttir, þjálfari á Sunnuhvoli í Ölfusi, og Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum sigruðu örugglega með 8.04 og er það annað árið í röð sem þau sigra þessa grein. Með Védísi á palli voru þeir feðgar, Bjarni Jónasson og Finnbogi Bjarnason.

„Sú reynda Harpa-Sjöfn frá Hvolsvelli (7.71) og knapi hennar Bjarni Jónasson lönduðu öðru sætinu og í því þriðja var Finnbogi Bjarnason með Leik frá Sauðárkróki (7.33). Katla Sif Snorradóttir og Eldey frá Hafnafirði höfnuðu í 4. sæti með 7.21 & Arnar Máni Sigurjónsson og Arion frá Miklholti lentu í 5. sæti með einkunnina 7.17 eftir góða sýningu á frjálsri ferð og hægu tölti.

Það var lið Íbishóls sem hlaut liðaplattann í kvöld með 60 stig og eru þau efst þegar mótið er hálfnað. Það var þó mjótt á munum og var Storm Rider rétt á eftir með 56,5 stig. Næsta mót er skeiðdagur deildarinnar á sumardaginn fyrsta þar sem keppt verður í 150m skeiði og gæðingaskeiði.“

A - ÚRSLIT

  1. Védís Huld Sigurðardóttir & Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum 8,04 / Íbishóll
  2. Bjarni Jónasson & Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli 7,71 / Storm Rider
  3. Finnbogi Bjarnason & Leikur frá Sauðárkróki 7,33 / Storm Rider
  4. Katla Sif Snorradóttir & Eldey frá Hafnarfirði 7,21 / Dýraspítalinn Lögmannshlíð
  5. Arnar Máni Sigurjónsson & Arion frá Miklholti 7,17 / Hrímnir

B - ÚRSLIT

  1. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir & Flaumur frá Fákshólum 7,46 / Equinics
  2. Fanney Dögg Indriðadóttir & Griffla frá Grafarkoti 7,42 / Hrímnir
  3. Magnús Bragi Magnússon & Óskhyggja frá Íbishóli 6,92 / Íbishóll
  4. Egill Már Þórsson & Bjarmi frá Akureyri 6,79 / Eques
  5. Mette Mannseth & Blundur frá Þúfum 5,62 / Þúfur

FORKEPPNI

  1. Védís Huld Sigurðardóttir & Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum 7,80 / Íbishóll
  2. Bjarni Jónasson & Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli 7,40 / Storm Rider
  3. Arnar Máni Sigurjónsson & Arion frá Miklholti 7,23 / Hrímnir
  4. Katla Sif Snorradóttir & Eldey frá Hafnarfirði 7,20 / Dýraspítalinn Lögmannshlíð
  5. Finnbogi Bjarnason & Leikur frá Sauðárkróki 7,10 / Storm Rider
  6. Magnús Bragi Magnússon & Óskhyggja frá Íbishóli 7,03 / Íbishóll
  7. Fanney Dögg Indriðadóttir & Griffla frá Grafarkoti 7,00 / Hrímnir
  8. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir & Flaumur frá Fákshólum 6,90 / Equinics

9-10. Egill Már Þórsson & Bjarmi frá Akureyri 6,87 / Eques

9-10. Mette Mannseth & Blundur frá Þúfum 6,87 / Þúfur

  1. Sigrún Rós Helgadóttir & Fannar frá Hafsteinsstöðum 6,83 / Dýraspítalinn Lögmannshlíð
  2. Guðmar Freyr Magnússon & Birta frá Íbishóli 6,77 / Íbishóll
  3. Agnar Þór Magnússon & Bassi frá Grund II 6,73 / Dýraspítalinn Lögmannshlíð

14-15. Elvar Einarsson & Muni frá Syðra-Skörðugili 6,70 / Storm Rider

14-15. Björg Ingólfsdóttir & Korgur frá Garði 6,70 / Equinics

  1. Viðar Bragason & Klaki frá Draflastöðum 6,57 / Eques

17-18. Baldvin Ari Guðlaugsson & Hagalín frá Efri-Rauðalæk 6,47 / Eques

17-18. Klara Sveinbjörnsdóttir Straumur frá Eskifirði 6,47 / Equinics

  1. Þórarinn Eymundsson & Stormur frá Kambi 6,37 / Hrímnir

20-21. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal & Vildís frá Múla 6,23 / Uppsteypa

20-21. Barbara Wenzl & Gola frá Tvennu 6,23 / Þúfur

  1. Randi Holaker & Glæsir frá Akranesi 5,93 / Uppsteypa
  2. Lea Christine Busch & Síríus frá Þúfum 5,70 / Þúfur
  3. Guðmundur Karl Tryggvason & Hrafnhetta frá Innri-Skeljabrekku 0,00 / Eques

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir