Áfram Tindastóll komið í hús

Kynningarblað knattspyrnudeildar Tindastóls, Áfram Tindastóll!. MYND: ÓAB
Kynningarblað knattspyrnudeildar Tindastóls, Áfram Tindastóll!. MYND: ÓAB

Í síðustu viku kom út kynningarblað knattspyrnudeildar Tindastóls, Áfram Tindastóll, en það voru starfsmenn Nýprents sem að önnuðust útgáfuna, söfnuðu efni, settu blaðið upp og prentuðu. Blaðinu hefur þegar verið dreift í hús á Sauðárkróki en einnig er hægt að nálgast það í verslunum og á völdum stöðum.

Í Áfram Tindastóll eru leikmenn meistaraflokka Tindastóls kynntir en myndatöku annaðist Davíð Már Sigurðsson af alkunnri snilld. Þá eru í blaðinu upplýsingar um leiki meistaraflokkanna og viðtöl við þjálfarana Donna Sig og Dominick Furness. Einnig er rabbað við Maríu Dögg og Jónas Aron um fótboltalífið og -sumarið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir