Baldur Þór að taka við Tindastóli?

Baldur Þór Ragnarsson. Mynd: Hjalti Árna.
Baldur Þór Ragnarsson. Mynd: Hjalti Árna.

Rúv.is fullyrðir að Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Þórs Þorlákshöfn, verði næsti þjálfari karlaliðs Tindastóls í Dominosdeild í körfubolta en sé við það að skrifa undir samning við félagið. Óhætt er að segja að Baldur Þór hafi vakið mikla athygli í vetur fyrir frammistöðu Þórs, sérstaklega í úrslitakeppninni þar sem liðið sló Stólana út úr keppninni eftir að hafa lent 0-2 undir. Þeir rifu sig hins vegar upp og unnu næstu þrjá leiki og komu sér með því í undanúrslit. Þar tapaði liðið tapaði fyrir KR 3-1.

Þá segir á Rúv.is að Slóveninn Jaka Brodnik muni fylgja Baldri á Krókinn en hann var með rúmlega 15 stig og 6 fráköst að meðaltali fyrir Þór í vetur.

Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls þegir þunnu hljóði og vill ekki gefa neitt upp um stöðu mála.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir