Bilic er genginn í Val

Sinisa Bilic í leik gegn liði ÍR í Síkinu. MYND: HJALTI ÁRNA
Sinisa Bilic í leik gegn liði ÍR í Síkinu. MYND: HJALTI ÁRNA

Sinisa Bilic, sem lék með liði Tindastóls síðasta vetur og var einn öflugasti leikmaður Dominos-deildarinnar, hefur skrifað undir samning við Valsmenn. Sem kunnugt er þá tók Finnur Freyr Stefánsson, sem áður þjálfaði KR og gerði að margföldum meisturum, við liði Vals í vor og er Bilic fyrsti leikmaðurinn sem hann nælir í.

Sinisa Bilic var með 19,6 stig, 5,8 fráköst og 2,3 stoðsendingar að meðaltali með Tindastól í Domino´s deildinni á síðustu leiktíð. Hann var með 20,5 stig að meðaltali og 42 prósent þriggja stiga nýtingu í leikjunum tveimur á móti Val – sem Stólarnir reyndar töpuðu.

Heimild: Vísir.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir