Eyþór Bárðar í lokahóp á EM U20 í körfubolta

Einn leikmaður Tindastóls, Eyþór Lár Bárðarson, hefur verið valinn í tólf manna lokahóp karlalandsliðs Íslands í körfubolta sem þátt tekur í Evrópumóti FIBA U20 í næsta mánuði. Mótið fer fram dagana 15.-24. júlí í Tbilisi í Georgíu og leikur Íslenska liðið í A-riðli með Eistlandi, Hollandi, Lúxemborg og Rúmeníu.

Þjálfari Stóla Baldur Þór Ragnarsson er einnig þjálfari liðsins en honum til aðstoðar er Pétur Már Sigurðsson.

Eftirfarandi leikmenn skipa landsliðshóp Íslands:

Ástþór Atli Svalason · Valur
Eyþór Lár Bárðarson · Tindastóll
Friðrik Anton Jónsson · Álftanes
Hilmir Hallgrímsson · Vestri

Hugi Hallgrímsson · Vestri
Ólafur Björn Gunnlaugsson · ÍR / Florida Southern, USA
Ólafur Ingi Styrmisson · Fjölnir
Óli Gunnar Gestsson · Selfoss

Orri Gunnarsson · Haukar
Sigurður Pétursson · Breiðablik
Sveinn Búi Birgisson · Valur
Þorvaldur Árnason · KR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir