Hjördís Halla þrefaldur Íslandsmeistari
Hjördís Halla Þórarinsdóttir varð um helgina þrefaldur Íslandsmeistari á nýafstöðnu Íslandsmóti barna- og unglinga í hestaíþróttum.
Hún sigraði tölt T3, Gæðingalist og varð samanlagður sigurvegari í barnaflokki, allt á hestinum Flipa frá Bergsstöðum. Einnig munaði litlu að fjórði titilinn félli henni í skaut en í fjórgangi V2 varð hún í öðru sæti eftir sætarröðun.
Hjördís varð einnig í öðru sæti í slaktaumatölti T4 með merina Vorbrá frá Efra-Langholti og í fjórða sæti í barnaflokki gæðinga með Hljóm frá Nautabúi.
/SMH