Ísak Óli tvöfaldur Íslandsmeistari á MÍ innanhúss

Ísak Óli í grindahlaupinu. Mynd: fri.is.
Ísak Óli í grindahlaupinu. Mynd: fri.is.

MÍ í frjálsíþróttum innanhúss fór fram um helgina í Frjálsíþróttahöllinni í Kaplakrika í Hafnarfirði. Fremsta frjálsíþróttafólk landsins keppti þar um Íslandsmeistaratitlana og skráðir keppendur alls 169 frá 14 félögum og samböndum. Frá UMSS voru sex keppendur.

Á heimasíðu frjálsíþróttadeildar Tindastóls segir að allir keppendur sambandsins hafi staðið sig vel að vanda.
Ísak Óli Traustason varð tvöfaldur Íslandsmeistari, í 60m grindahlaupi hljóp hann á 8,27sek og í langstökki stökk hann 6,80m. Þá varð hann í 2. sæti í 60m hlaupi á 7,07sek (pm) og í 4. sæti í stangarstökki með 4,00m.
Sveinbjörn Óli Svavarsson varð í 4. sæti í 60m hlaupi á 7,23sek og í 6. sæti í 200m hlaupi á 23,19sek.
Í kúluvarpi kvenna varð Aníta Ýr Atladóttir í 5. sæti kastaði 10,55m (pm) og Ragna Vigdís Vésteinsdóttir í 6. sæti með 10,24m. Rúnar Ingi Stefánsson jafnaði sinn besta árangur í kúluvarpi, kastaði 11,42m, og Daníel Þórarinsson hljóp 60m á 7,62sek og 200m á 24,19sek.

Í stigakeppni mótsins sigraði FH með 50 stig, í 2. sæti ÍR með 48 stig, í 3. sæti Breiðablik með 21 stig, og lið UMSS hafnaði í 4. sæti af öllum þátttökuliðunum með 8 stig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir