Jón Gísli Stefánsson í U15 úrtakshóp

Jón Gísli Stefánsson. Mynd af Huni.is.
Jón Gísli Stefánsson. Mynd af Huni.is.

Jón Gísli Stefánsson, leikmaður frá Hvöt á Blönduósi, hefur verið valinn, af landsliðsþjálfara U15, í 35 manna hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum sem hefjast í dag og verða haldnar fram á sunnudag. Á Húna.is kemur fram að æfingarnar fari fram í Akraneshöllinni, Kórnum og Egilshöll og er Jóni Gísla óskað góðs gengis og til hamingju með að verða valinn í hópinn.

Feykir tekur heilshugar undir þær kveðjur.

Hópinn má sjá HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir