Keppt verður um VÍS BIKARINN í körfunni

Í dag var Tryggingafélagið VÍS kynnt til sögunnar sem nýr bakhjarl Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ) og því ljóst að framundan verður barist um VÍS BIKARINN í bikarkeppni KKÍ. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem VÍS styður við KKÍ með þessum hætti. „KKÍ hefur unnið frábært starf undanfarin ár og hafa vinsældir körfuboltans aukist jafnt og þétt. Ljóst er að mikil samlegð er í áherslum KKÍ og VÍS í lýðheilsu. VÍS beinir því spjótunum að forvörnum, samfélaginu til heilla ─ en íþróttir eru frábær forvörn, fyrir líf og sál,“ segir í tilkynningu sem barst fjölmiðlum í dag.

„Stuðningur fyrirtækjanna í landinu er okkur afar mikilvægur svo hægt sé að halda úti öflugu starfi. Við hjá KKÍ erum svo heppin að hafa góðan hóp fyrirtækja sem samstarfaðila og flest þeirra hafa verið í mörg ár með okkur. Núna bætist VÍS við þennan flotta hóp sem er afar ánægjulegt, enda VÍS eitt af öflugustu fyrirtækjum landsins. VÍS er nú einn af stóru samstarfsaðilum okkar og það verður gaman að sjá nafn VÍS í bikarkeppninni! Þrátt fyrir það langa stopp sem hefur verið í keppnishaldi, þá er virkilega jákvætt að VÍS BIKARINN muni fara á loft í vor þegar við krýnum VÍS bikarmeistara karla og kvenna. Því er mikil tilhlökkun hjá okkur fyrir nýja samstarfinu við VÍS sem má segja að sé afmælisgjöf til sambandsins ─ en á morgun, föstudaginn 29. janúar, mun KKÍ fagna 60 ára afmæli sínu,“ segir Hannes Jónsson, formaður KKÍ.

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS segir fyrirtækið stolt af samstarfinu og hafi mikla trú á KKÍ sem hafi unnið ötullega að því að auka vinsældir þessarar frábæru íþróttar síðustu ár. „Iðkendum hefur fjölgað einna mest í körfubolta og er nú næst stærsta boltaíþróttin á eftir fótbolta. Við erum ánægð að geta lagt okkar af mörkum til þess að styrkja enn frekar öflugt starf KKÍ. Hreyfing hefur aldrei verið jafn mikilvæg og nú þegar alheimsfaraldurinn skekur heimsbyggðina. Ég er ekki í nokkrum vafa að bikarkeppnin í vor verður æsispennandi og það verður gaman að sjá hverjir hljóta VÍS BIKARINN!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir