Körfuknattleiksdeild Tindastóls semur við Taiwo Hassan Badmus
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við Taiwo Hassan Badmus að leika annað tímabil með Tindastól.
Tai var fremst í flokki þegar liðið snéri gengi sínu til betri vegar eftir áramótin á síðasta tímabili og mætti færa rök fyrir því að hann hefði sýnt mestar framfarir allra í hópnum, þó svo að flestir, ef ekki allir, hafi sýnt miklar framfarir.