Kyen Nicholas til Tindastóls

Knattspyrnudeild Tindastóls hefur samið við enska framherjann Kyen Nicholas til að spila með liðinu út leiktíðina.

Kyen er 22 ára gamall stór og sterkur. Áður en kappinn mætti á Krókinn spilaði hann með Epsom & Ewell F.C. í Englandi. Samkvæmt heimildum Feykis skoraði Kyen 18 mörk í 24 leikjum á síðasta tímabili og því mikill fengur fyrir Tindastól.

Kyen Nicholas verður eldlínunni í næsta leik á móti Fjarðabyggð sem verður spilaður á Sauðárkróksvelli. Nú er um að gera að skella sér á völlinn og fylgjast með kappanum spila sinn fyrsta leik.

/EÍG

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir