Meistaramót GSS 2019 - Arnar Geir og Árný Lilja klúbbmeistarar GSS

Arnar Geir Hjartarson og Árný Lilja Árnadóttir klúbbmeistarar GSS. Mynd:KBH.
Arnar Geir Hjartarson og Árný Lilja Árnadóttir klúbbmeistarar GSS. Mynd:KBH.

Arnar Geir Hjartarson (295 högg) og Árný Lilja Árnadóttir (324 högg) urðu klúbbmeistarar á meistaramóti GSS sem fór fram að Hlíðarendavelli á Sauðárkróki dagana 10. – 13. júlí.  Þátttakendur voru 38 talsins og nutu þeir sín vel í góðu veðri á vellinum sem er í toppstandi, að sögn Kristjáns Bjarna Halldórssonar, formanns klúbbsins.

Flottur hópur í lokahófinu. Mynd: KBH.

Spilaðir voru fjórir hringir, nema í byrjendaflokki og öldungaflokki þar sem spilaðir voru þrír hringir. Að loknu móti var verðlaunaafhending og lokahóf í skála þar sem Kaffi Krókur sá um veitingarnar.

Úrslit mótsins má sjá inn á golf.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir