Mikilvægt að halda fókus þó veður sé gott

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd: PF.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd: PF.

Almannavarnir hafa fengið ábendingar um aukna hópamyndun unglinga á leiksvæðum að kvöldlagi og segir á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar að ástæðan sé líklega gott veður og þær jákvæðu fréttir sem hafa verið að berast af þróun mála er varðar afléttingu samkomubanns.

Almannavarnir vilja hins vegar brýna fyrir fólki að mikilvægt sé að halda fókus og sofna ekki á verðinum en fyrsta skrefið í afléttingu samkomubanns tekur gildi 4. maí og því er ennþá í gildi þær takmarkanir á samkomum fólks eins og hefur verið undanfarnar vikur.

„Almannavarnir hvetja foreldar til að vera vakandi fyrir þessari hópamyndun unglinga og að halda áfram að fara eftir fyrirmælum og reyna eftir fremsta megni að sporna geng allri hópamyndun,“ segir á Skagafjörður.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir